Skriðuklaustur

Image
Á myndinni sjást rústir Skriðuklausturs endurgerðar.

English below

-hýbýli helgra manna

Fornleifauppgröftur á rústum Skriðuklausturs í Fljótsdal stóð yfir frá 2002-2012. Með honum tókst að afla mikilvægra gagna sem nauðsynleg eru til áframhaldandi rannsókna á klaustrum og klausturhaldi hérlendis.

Rannsóknin var með aðsetur hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri og á Þjóðminjasafni Íslands. Bók um rannsóknina, Sagan af klaustrinu á Skriðu, kom út hjá Sögufélagi í ágúst 2012.

Markmið

Markmiðið með verkefninu var að rannsaka byggingar og starfsemi klaustursins sem var rekið á Skriðu í Fljótsdal frá 1493 til 1554. Uppgröftur á rústum Skriðuklausturs stóð yfir frá 2002 til 2011.

Niðurstöður

Ljóst er að bygging Skriðuklausturs bar svipmót annarra klausturbygginga í Evrópu en hún samanstóð af þyrpingu vistarvera og veglegri kirkju sem byggð voru við skýrt afmarkaðan klausturgarð með brunni. Hlutverk Skriðuklausturs virðist einnig hafa verið sambærilegt við það sem var í öðrum kaþólskum klaustrum erlendis.

Í klaustrinu fór fram ræktun mat- og lækningajurta en garðyrkja var iðulega mikil og fjölbreytt í öðrum evrópskum klaustrum. Þar var einnig jarðað en af þeim beinagrindum sem voru grafnar upp má ráða að í Skriðuklaustri hafi verið rekinn spítali en líkn sjúkra og fátækra var eitt helsta hlutverk margra kaþólskra klaustra í Evrópu.

Samtals voru grafnar upp tæplega 300 beinagrindur í kirkjugarði Skriðuklausturs. Helmingur þeirra voru bein sjúklinga, um 130 voru bein óvígðra leikmanna og 20 vígðs reglufólks. Útlit kaþólskra klaustra í Evrópu allri mótaðist fyrst og fremst af verkefnum þeirra sem voru afar mismunandi, enda þótt kjarni starfsemi þeirra hafi alltaf snúist um að bæta líf almennings í gegnum bænahald og aðhlynningu hvers konar. 

 

Monastic Activities at Skriða

The project centered around an archaeological excavation on the ruins of the monastery that was operated at the farm Skriða in Fljótsdalur from 1493–1554.

The excavation lasted from 2002 to 2012 and was funded with contributions from the Christianization fund, the Icelandic Research Fund (Rannís), the University of Iceland Research Fund, the Icelandic state and Grampus Heritage and Training Ltd beside the institutions involved, such as Gunnarsstofnun at Skriðuklaustur and the National Museum of Iceland.

A monograph about the research, "Sagan af klaustrinu á Skriðu", was published by Sögufélag in 2012.


  Skriðuklaustur 3D

Skýrslur/Reports

Skriðuklaaustur bókakápa

Skriðuklaustur 

 

Sagan af klaustrinu á Skriðu - bókakápa

Sagan af klaustrinu á Skriðu eftir Steinunni Kristjánsdóttur

 

Samstarf og fjármögnun

Árið 2001 var stofnað félagið Skriðuklaustursrannsóknir sem hefur það hlutverk að fylgja rannsóknunum eftir. Í stjórn þess eiga sæti forstöðumenn Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri og Minjasafns Austurlands á Egilsstöðum, auk fagstjóra rannsókna- og varðveislusviðs Þjóðminjasafns Íslands og aðila sem tilnefndur er af Biskupsstofu. Einn aðili situr í stjórn félagsins án tilnefningar. Stjórnarmenn hafa verið þessir:

Gunnarsstofnun:

  • Aðalmaður: Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður, 2001-2013
  • Varamaður: Vésteinn Ólason fyrrv. forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, 2007-2013
  • Hrafnkell A. Jónsson héraðsskjalavörður, 2001-2007

 

Minjasafn Austurlands:

  • Aðalmaður: Dr. Unnur Birna Karlsdóttir safnstjóri, 2012-2103
  • Elfa Hlín Pétursdóttir fyrrv. safnstjóri, 2005-2012
  • Rannveig Þórhallsdóttir fyrrv. Safnstjóri, 2001-2005
  • Varamaður: Sigurjón Bjarnason formaður stjórnar Minjasafnsins, 2009-2013
  • Þórey Hannesdóttir fyrrv. formaður stjórnar Minjasafnsins, 2001-2009

 

Þjóðminjasafn Íslands

  • Aðalmaður: Dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir sviðsstjóri, 2007-2013
  • Dr. Hrefna Róbertsdóttir sviðsstjóri, 2001-2007
  • Varamaður: Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, 2001-2013

 

Biskupsstofa

  • Aðalmaður: Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir prófastur á Eiðum, 2005-2013
  • Sr. Sigfús J. Árnson sóknarprestur á Egilsstöðum, 2001-2005 
  • Varamaður: Sr. Lára G. Oddsdóttir sóknarprestur á Valþjófsstað, 2001-2013

 

Án tilnefningar

  • Jón Kristjánsson fyrrv. ráðherra og alþingismaður, 2007-2013
  • Erna Indriðadóttir upplýsingafulltrúi Alcoa á Austurlandi, 2001-2007
  • Varamaður: Erna Indriðadóttir upplýsingafulltrúi Alcoa á Austurlandi, 2007-2013
  • Björn Gísli Erlingsson framhaldsskólakennari, 2001-2007

 

Verkefnastjóri var dr. Steinunn Kristjánsdóttir prófessor við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn.

Rannsóknin á Skriðuklaustri var fjármögnuð með framlögum úr eftirfarandi sjóðum:

  • Kristnihátíðarsjóði 2002-2006
  • RANNÍS 2000, 2006-2009, 2012
  • Rannsóknasjóði Háskóla Íslands 2006-2012
  • Fornleifasjóði 2004-2012
  • Nýsköpunarsjóði námsmanna 2000, 2004-2008, 2010, 2011
  • Leonardo da Vinci áætlun ESB 2002-2012
  • Culture 2000 áætlun ESB 2005
  • NordPlus 2010-2011
  • Þjóðhátíðarsjóði 2007, 2009, 2011
  • Menningarráði Austurlands 2005
  • Menningarborgarsjóði 2004
  • Bókmenntasjóði 2012
  • Landsvirkjun 2002-2011
  • Ríkissjóði 2005-2012

Auk aðildarstofnana rannsóknanna á Skriðuklaustri, þ.e. Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri, Þjóðminjasafns Íslands og Minjasafns Austurlands voru samstarfsaðilar rannsóknanna þessir:

  • Mark Graham hjá Grampus Heritage and Training Ltd., Skotlandi
  • Dr. Nicola Maccioni hjá Rannsóknarstofnunin IVALSA í Flórens á Ítalíu
  • Guiseppe Venturini og dr. Elsa Pacciani hjá Sopritendenza ai Beni Archeologici per la Toscana í Flórens á Ítalíu

  • Dr. Kjell Lundquist dósent (d. 2011) í landslagsarkitektúr við Lundarháskóla í Alnarp
  • Per Arvid Åsen grasafræðingur hjá Agder naturmuseum og botaniske hage
  • Dr. Inger Larsson prófessor í örnefnafræðum við Háskólann í Stokkhólmi

 

Sjá má afrakstur þess á heimasíðunni Medeltida klostergrunder på Island

 

  • Adriana Scheliga, nemi í arkitektúr
  • Adriana Zugiair, fornleifafræðingur
  • Albína Hulda Pálsdóttir, fornleifafræðingur
  • Alexander Parish, fornleifafræðingur
  • Amiee Kleinman, fornleifafræðingur
  • Ana Marta Dixon, fornleifafræðingur
  • Anna Wändahl, fornleifafræðingur
  • Andrew Sibley, fornleifafræðingur
  • Arnar Logi Björnsson, fornleifafræðingur
  • Ashley William Tuck, fornleifafræðingur
  • Atli Birkir Kjartanson, nemi í fornleifafræði við HÍ
  • Bára Sigurjónsdóttir, tónlistarkennari
  • Bjarki Borgþórsson, fornleifafræðingur
  • Björgvin Gunnarsson, fornleifafræðingur
  • Britta Keune, nemi í arkitektúr
  • Catherine Barry, fornleifafræðingur
  • Catherine Brown, fornleifafræðingur
  • Cecilia Collins, mannabeinafræðingur
  • Dr. Chiara Capretti, fornvistfræðingur
  • Clarissa Cognato, fornleifafræðingur
  • Chloe Brown, fornleifafræðingur
  • Clarie York, fornleifafræðingur
  • Conny Schauer, nemi í arkitektúr
  • Cristina Bastiani, leiðsögumaður
  • Christina Brandt, fornleifafræðingur
  • Dagný Arnarsdóttir, fornleifafræðingur
  • Daniel Lindblad, fornleifafræðingur
  • Daniel Zwick, fornleifafræðingur
  • Daniela Weber, nemi í arkitektúr
  • Davíð Bragi Konráðsson, fornleifafræðingur
  • Domonique Debeaubien, mannabeinafræðingur
  • Elin Ahlin Sundman, mannabeinafræðingur
  • Elisabeth Clara Rosa Wormer-Pando, fornleifafræðingur
  • Elisabeth Su-Kim Scott, fornleifafræðingur
  • Dr. Elsa Pacciani, mannabeinafræðingur hjá Háskólanum í Flórens
  • Enrico Bittner, nemi í arkitektúr
  • Erna Jóhannesdóttir, mannfræðingur
  • Fredrik Wirbrand, fornleifafræðingur
  • Fredrike Kroll, nemi í arkitektúr
  • Gillian Toms, fornleifafræðingur
  • Giuseppe Venturini, forvörður hjá IVALSA
  • Glenn Ricci, fornleifafræðingur
  • Graham Langford, forvörður á Þjóðminjasafni Íslands
  • Guðný Zoëga, mannabeinafræðingur
  • Guðrún Helga Jónsdóttir, nemi í fornleifafræði
  • Gunnar Gunnarsson, leiðsögumaður
  • Hákon Jensson, fornleifafræðingur
  • Halldóra Ásgeirsdóttir, forvörður á Þjóðminjasafni Íslands
  • Hayley Roberts, fornleifafræðingur
  • Helen Green, fornleifafræðingur
  • Helene Martin, sagnfræðingur
  • Hillary Sanders, fornleifafræðingur
  • Hrafnkell Brimar Hallmundsson, fornleifafræðingur
  • Hrönn Konráðsdóttir, fornvistfræðingur (sérgrein: greiningar skordýr)
  • Ilaria Santoni, fornvistfræðingur í doktorsnámi við Háskólann í Flórens
  • Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur
  • Irene Cilio, nemi í fornleifafræði við Háskólann í Flórens
  • Janis Mitchell, forvörður
  • Jasmine Woods, fornleifafræðingur
  • Jeffrey Ken Mikamo-White, fornleifafræðingur
  • Johanna Morgan, nemi í mannabeinafræði
  • Jonathan Møller, fornvistfræðingur (sérgrein: greiningar á dýrabeinum)
  • Jonathan Dye, fornleifafræðingur
  • Jón Ingi Sigurbjörnsson, félags- og sagnfræðingur
  • Julian Jansen van Rensburg, fornleifafræðingur
  • Karin Rogers, fornleifafræðingur
  • Katherine McBride, fornleifafræðingur
  • Kate McAnally, fornleifafræðingur
  • Katie Squire, fornleifafræðingur
  • Katie Waterhouse, fornleifafræðingur
  • Kenneth Malcolm MacKenzie, fornleifafræðingur
  • Lara Hogg, fornleifafræðingur
  • Larisa Rupar, nemi í arkitektúr
  • Lilja Laufey Davíðsdóttir, fornleifafræðingur
  • Lísa Rut Björnsdóttir, fornleifafræðingur
  • Magnús Sigurgeirsson, jarðfræðingur
  • Marcela Pena, fornleifafræðingur
  • Margrét S. Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur
  • Margrét Valmundsdóttir, fornleifafræðingur
  • Mark Fussey, fornleifafræðingur
  • Marta Siwiec, fornleifafræðingur
  • Martin James Kelly, fornleifafræðingur
  • Morwenna Rolands, fornleifafræðingur
  • Nadine Pflüger, nemi í arkitektúr
  • Nataly Newell, fornleifafræðingur
  • Dr. Nicola Macchioni, skógfræðingur hjá IVALSA
  • Nicolas Tait, fornleifafræðingur
  • Ólafur Eggertsson, skógfræðingur
  • Oscar Spjuth fornleifafræðingur
  • Patrycja Kupiec, fornleifafræðingur
  • Ragnheiður Erla Bjarnadóttir, fornvistfræðingur
  • Ragnheiður Gló Gylfadóttir, fornleifafræðingur
  • Rebecca Cessford, fornleifafræðingur
  • Robert Lindner, nemi í arkitektúr
  • Robin Webb, fornleifafræðingur
  • Rosie Fuller, fornleifafræðingur
  • Russell Henshaw, fornleifafræðingur
  • Sara Andersson, fornleifafræðingur
  • Sarah Elisabeth Allen, fornleifafræðingur
  • Sean Lewis, fornleifafræðingur
  • Sebastien Liahaugen, fornleifafræðingur
  • Sheila Hamilton-Dyer, dýrabeinafræðingur
  • Dr. Sigurður Ingólfsson, bókmenntafræðingur, leiðsögumaður
  • Sigurjóna Guðnadóttir, fornleifafræðingur
  • Sindri Garðarsson, nemi í fornleifafræði við HÍ
  • Sófus Jóhannsson, sagnfræðingur
  • Stefano Paci, fornleifafræðingur
  • Sverrir Sævar Jónsson, nemi í fornleifafræði við HÍ
  • Teresa Hawtin, fornleifafræðingur
  • Tracy O'Donnell, fornleifafræðingur
  • Una Helga Jónsdóttir, nemi í fornleifafræði við HÍ
  • Vala B. Garðarsdóttir, fornleifafræðingur
  • Vala Gunnarsdóttir, fornleifafræðingur
  • William Burnham, fornleifafræðingur
  • Þóra Pétursdóttir, fornleifafræðingur